Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, lauk fundarhöldum með fulltrúum ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu fyrir skömmu. Ögmundur sagði enga niðurstöðu hafa fengist í málið.

„Þetta er enn eitt stórt spurningamerki,“ sagði Ögmundur.

Ögmundur sagði enn vera óvíst að lífeyrissjóðirnir komið að fyrirhuguðum aðgerðum og lagði áherslu á að þeir tryggi fyrst og fremst hag sinna lífeyrisþegna. Fyrst þurfi að sjá hvert fjármálakerfið stefnir, áður en lífeyrissjóðirnir komi að málinu.