Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu Hraunavina, Landverndar, Landgræðslu- og umhverfisverndarsamtaka Íslands og Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands um að fella úr gildi ákvörðun bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga frá 30. júní 2023 að veita Landsneti framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2.
Að mati úrskurðarnefndarinnar voru ekki þeir form- eða efnisannmarkar á undirbúningi eða meðferð málsins og því var hafnað að ógilda niðurstöðuna.
Óska eftir heimild til eignarnáms
„Þar með eru öll framkvæmdaleyfi á línuleiðinni í höfn og samið hefur verið við stærsta hluta landeigenda en hjá ráðuneyti Umhverfis-, orku- og loftslagsmála liggur fyrir beiðni um heimild til eignarnáms á hluta þriggja jarða sem línan liggur um og ósamið er við,“ segir í tilkynningu frá Landsnet.
Samkvæmt Landsneti gengur undirbúningur fyrir framkvæmdir vel og fram undan er að bjóða út efni í loftlínur en innkaupum á jarðstreng er lokið. „Ef allt gengur að óskum verður jarðvinna boðin út í vor og framkvæmdir við þessu mikilvægu línu, Suðurnesjalínu 2, munu hefjast síðsumars.“
Saga Suðurnesjalínu 2 hefur verið löng og stormasöm en fyrsta framkvæmdaleyfið fékkst árið 2013 en landeigendur kærðu síðan því þeir vildu að línan yrði lögð í jörð. Hæstiréttur ógilti framkvæmdaleyfið á grundvelli gallaðs umhverfismats árið 2016 en Landsnet ákvað eftir ítarlega rýni að halda loflínukostinum til streitu og óska eftir framkvæmdaleyfi.