Pósturinn opnaði í gær nýtt pósthús á Stórhöfða 32, í sömu byggingu og Póstmiðstöð Póstsins. Nýja pósthúsið kemur í stað þess sem var á Höfðabakka. Höfuðstöðvar Íslandspósts verða þó áfram á Höfðabakka.
„Nýja pósthúsið er í næstu götu svo það er stutt að fara og þar verður allt með sama sniði og áður. Aðkoma fyrir viðskiptavini á Stórhöfða er mun betri og þar eru næg bílastæði. Á sama stað er auk þess vörumóttaka fyrir fyrirtæki sem eflaust mun spara einhverjum sporin,“ segir í tilkynningu Póstsins.
„Við nýttum allt sem var heillegt af gamla pósthúsinu við Höfðabakka, flikkuðum upp á það og settum rauða póstlitinn á veggina,“ segir Kjartan Flosason, forstöðumaður pósthúsa, í tilkynningu.