Orkan IS, dótturfélag Skeljar fjárfestingarfélags, hefur keypt 42% hlut minnihlutaeigenda í Lyfjavali. Fyrir átti Orkan IS 58% hlut í Lyfjavali og með kaupunum eignast Orkan því Lyfjaval að fullu.
„Það eru afar spennandi tímar framundan hjá Lyfjavali og mörg skemmtileg tækfæri til að bjóða viðskiptavinum upp á fleiri staðsetningar. Lyfjaval hefur skapað sér sérstöðu á markaði með bílalúgum og löngum opnunartíma sem hefur verið afar snjöll leið til að einfalda viðskiptavinum lífið á ferðinni,” segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar, í fréttatilkynningu.
Lyfjaval rekur sjö apótek, sex á höfuðborgarsvæðinu og eitt í Reykjanesbæ, þar af fjögur bílalúguapótek sem njóta vinsælda meðal viðskiptavina. Nýlega var opnunartíminn í Lyfjavali í Hæðasmára lengdur og eru bílalúgur nú opnar allan sólahringinn.
Skel, sem hét þá Skeljungur, eignaðist meirihluta í Lyfsalanum árið 2021. Á sama tíma keypti Lyfsalinn félagið Lyfjaval og sameinuðust félögin undir nafni Lyfjavals.
Samkvæmt síðasta ársreikningi félagins átti Pilla Holding, í eigu Magnúsar Ármanns, 23,6% hlut í Lyfjavali og Medisýn, félag Kristjáns M. Grétarssonar, átti 18,4% hlut.
„Þetta eru mjög góð tíðindi fyrir okkur hjá Lyfjavali. Lyfjaval hefur verið brautryðjandi í lyfsölu á Íslandi frá því að það opnaði fyrsta frjálsa apótekið, Apótek Suðurnesja árið 1996, fyrsta bílaapótekið 2005, hóf netsölu með lyf 2022 og býður nú sólarhringsopnun í lyfsölu, það eina á landinu. Við erum mjög spennt fyrir áframhaldandi vexti í samstarfi við Orkuna,” segir Svanur Valgeirsson, framkvæmdastjóri Lyfjavals.
Orkan IS ehf. var stofnað 1. desember 2021. Starfsemin er einkum á sviði þjónustu til einstaklinga, svo sem rekstur þjónustustöðva Orkunnar, 10-11, Extra, Löðurs bílaþvottastöðva, Íslenska vetnisfélagsins, Gló og Lyfjavals sem nú verður að fullu í eigu Orkunnar IS.