Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, fagnar því að horfur á raforkumarkaði hafi batnað til skamms tíma eftir miklar hækkanir að undanförnu.
Líkt og Viðskiptablaðið greindi frá í dag lækkaði heildsöluverð á raforku verulega í mánaðarlegu söluferli raforkumarkaðsins Vonarskarðs á svokölluðum mánaðarblokkum.
Lækkunin nemur að meðaltali 11,6% milli mánaða en 13,3% samanborið við hápunkt verðþróunarinnar í nóvember.
„Þetta eru jákvæðar fréttir og endurspegla betri vatnsbúskap og þar með eru horfur á meiri framleiðslu raforku en útlit var fyrir í haust. Horfur til skemmri tíma litið hafa þannig batnað en því miður hafa horfur til lengri tíma litið versnað með áframhaldandi töfum á Hvammsvirkjun með nýlegum dómi Héraðsdóms,“ segir Sigurður í samtali við Viðskiptablaðið.
Að auki urðu í fyrsta sinn síðan í haust viðskipti með blokkir frá júní til og með september á þessu ári, á 13,9% lægri verðum en lægstu sölutilboð síðasta söluferlis laust fyrir jól.
Mánaðarblokkir fela í sér fast magn raforku á hverri klukkustund heils almanaksmánaðar, og frá því í fyrrasumar hefur bróðurpartur heildsöluviðskipta með raforku verið á því formi, þar sem ekki hafa átt sér stað teljandi viðskipti með lengri samninga.
„Vísitala raforku sem Hagstofan mælir hafði hækkað um 13,2% á tólf mánaða tímabili miðað við nóvember sl. Við höfum heyrt um enn meiri hækkanir frá fyrirtækjum undanfarna mánuði en algengt er að heyra um 20-30% hækkun raforkuverðs. Verð mánaðarblokka til afhendingar í byrjun þessa árs hækkaði um rúmlega 30% í útboðum Vonarskarðs á síðasta ári en hefur nú lækkað aftur,“ segir Sigurður.
„Það er virkilega ánægjulegt að orkufyrirtækin bjóði nú lægri verð en í nóvember eins og við sjáum í útboðum Vonarskarðs. Hafa þarf í huga að lítið magn er að baki viðskiptunum. Það blasir þó við að almenningur og fyrirtæki njóti ábata af bættri stöðu eftir miklar hækkanir á raforkuverði undanfarin misseri þar sem orkufyrirtæki hafa hugsanlega farið of geyst í verðhækkanir,“ segir Sigurður.