Penninn Eymundsson átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um aðstöðu undir rekstur bókaverslunar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu en Isavia, rekstraraðili stóð fyrir útboði fyrir reksturinn þar sem fyrri samningur við Pennann er að renna út.
Í tilkynningunni kemur fram aðverslunin muni flytja í annað bil og stækka um rúmlega 30%. Áfram verði mikil áhersla á íslenskar og erlendar/þýddar bækur en aukin áhersla verður lögð á gjafa- og matvöru til að grípa með sér. Verslunin verði hlýleg, nútímaleg og áhugaverð. Mun farþegum m.a. standa til boða að berja fyrstu prentun af Njálu frá 1772 augum inni í versluninni. Þá munu farþegar geta undirbúið kaupin heima í stofu á vefverslun Pennans til að nýta tímann í flugstöðinni sem best.
„Átta aðilar sóttu útboðsgögn eftir að opnað var fyrir aðgang að þeim 6. október síðastliðinn. Tvö fyrirtæki sendu gögn til þátttöku, bæði uppfylltu hæfiskröfur og var þeim boðið til viðræðna. Óskað var eftir aðila með reynslu af rekstri tveggja eða fleiri bókaverslana sem selja a.m.k. bækur, tímarit, afþreyingarefni og gjafavörur. Samkeppnin var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu eins og reglur kveða á um.
Við mat á tilboðum var m.a. horft til áherslna í vöruúrvali og hvernig tryggt verði að það haldist í takti við breytilega eftirspurn, að verðstefnan tryggi það að virðisaukaskattleysi skili sér til viðskiptavina, tryggð séu gæði og hraði í þjónustu, hönnun sé skilvirk og í takti við væntingar. Þá voru einnig metnar áherslur í markaðsmálum, þ.m.t. kynningaráætlun. Auk þessara tæknilegu þátta voru metnir fjárhagslegir þættir,“ segir í fréttatilkynningu.
Í valferlinu hafi verið notast við þá aðferð að hefja viðræður við aðilana og í kjölfar þeirra skiluðu þátttakendur inn lokatilboðum. Valnefnd hafi svo metið tilboðin til stiga og haft til stuðnings mat frá ráðgefandi sérfræðingum. Valnefndin var skipuð tveimur fulltrúum frá Isavia og einum óháðum ráðgjafa frá Deloitte.