Bakarískeðjan Brikk stefnir á að víkka út vörúrval kaffihúsanna á næstu misserum og jafnvel lengja opnunartímann. Oddur Smári Rafnsson, einn þriggja eigenda Brikks segir þó engar nákvæmar tímasetningar komnar varðandi mögulegar kvöldopnanir.

„Það hefur lengi verið draumur hjá okkur að vera með kvöldopnanir á völdum staðsetningum. Þá yrði boðið upp á pizzur, pasta og annað slíkt á kvöldin."

Þeir Oddur, Einar Hjörvar Benediktsson og Davíð Magnússon opnuðu fyrsta Brikk kaffihúsið árið 2017 í Hafnarfirði. Í dag eru útibúin orðin fjögur talsins og hefur fyrirtækið því vaxið hratt á undanförnum árum.

Þeir félagar finna fyrir mikilli eftirspurn þrátt fyrir að fyrstu rekstrarárin hafi reynst krefjandi. Einar segir að nú sé unnið að því að fínstilla viðskiptamódel félagsins.

„Síðustu rekstrarár hafa verið hausverkur og hafði Covid áhrif á okkur eins og aðra í geiranum. Við sjáum hins vegar fram á það að öll erfiðisvinnan síðustu ár sé loks að fara skila sér í góðri afkomu. Við erum mjög bjartsýnir á framtíðina,“ segir Einar.

Nánar er fjallað um Brikk í Viðskiptablaðinu, sem kom út miðvikudaginn 5. apríl. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.