Í tilkynningu frá Póstinum segir að flestir Grindvíkingar hafi látið áframsenda póstinn sinn en nánast öll þjónusta hefur lagst af í Grindavík, þar á meðal póstþjónustan. Póstbox er til staðar í Grindavík en það er lokað eins og er.
Allar sendingar sem berast fólki sem er enn með skráð heimilisfang í Grindavík fara á pósthúsið í Reykjanesbæ.
Nokkurt magn af bréfapósti hefur hins vegar safnast upp á pósthúsinu í Reykjanesbæ og hefur pósturinn hvatt fólk með er með nýtt heimilisfang, jafnvel tímabundið, að skrá uppfærðar upplýsingar inn á vefsíðu Póstsins.
„Við tókum upp á því að hringja í fólk til að láta það vita af því að þess bíði bréf hér á pósthúsinu. En það er best að láta áframsenda póstinn á nýtt heimilisfang og muna að merkja lúguna svo pósturinn rati á réttan stað,“ segir Elín Björg Guðmundsdóttir, rekstrarstjóri Póstsins á Suðurnesjum.