Raforkuverð hefur hækkað um 16,1% á síðustu tólf mánuðum samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands og bent er á í frétt á vef Samtaka iðnaðarins (SI). Til samanburðar mælist tólf mánaða verðbólga nú 3,8%.
„Verðbólgan hefur farið minnkandi undanfarna mánuði á sama tíma og hækkun raforkuverð hefur aukist,“ segja SI.
Samtökin benda á að raforkuverð hafi hækkað um alls 28% á síðustu tveimur árum. Til samanburðar hafi vísitala neysluverðs hækkað um 10,2% á sama tíma. Ekki hefur mælst jafn mikil hækkun raforkuverðs frá árinu 2011.
„Hækkun raforkuverðs er heimatilbúinn vandi. Hækkunin endurspeglar að mati Samtaka iðnaðarins þá kyrrstöðu sem ríkt hefur í uppbyggingu raforkukerfisins á undanförnum árum. Á sama tíma og landsmönnum hefur fjölgað og hagkerfið vaxið hefur allt of lítil uppbygging átt sér stað í bæði raforkuvinnslu og dreifingu.“

Verð á hverri kílóvattstund (kWst) raforku með virðisaukaskatti sé nú á bilinu 9,87 til 12,97 krónur hjá smásölum. SI segja að þessi verð hafi hækkað verulega á síðustu tveimur árum, þó með nokkrum mismun milli birgja.
„Samtök iðnaðarins telja brýnt að ráðist verði í markvissa uppbyggingu raforkukerfisins til að mæta vaxandi eftirspurn og tryggja stöðugleika í verði. Tryggja þarf samkeppnishæfni íslensks iðnaðar með traustu og hagkvæmu aðgengi að raforku, sem er ein af grunnstoðum atvinnulífsins á Íslandi.“
