Við­snúningur hefur orðið á rekstri Ramma­gerðarinnar sam­kvæmt nýrri árs­skýrslu fé­lagsins var yfir 100 milljóna króna hagnaður eftir erfiðan rekstur síðustu ár af völdum kóróna­veirunnar.

Í til­kynningu frá Ramma­gerðinni kemur fram að arður verður ekki greiddur út í ár heldur notaður í á­fram­haldandi upp­byggingu fé­lagsins.

„Við­spyrna Ramma­gerðarinnar ehf. hófst á árinu 2021, verslanir voru endur-opnaðar, nýjar verslanir opnaðar og fé­lagið bætti við sig starfs­fólki eftir upp­sagnir á árinu 2020. Á árinu 2022 var á­hersla lögð á að styrkja inn­viði félagsins með góðum árangri. Ramma­gerðina sækir heim mikill fjöldi er­lendra gesta sem og Ís­lendinga,“ segir í til­kynningunni.

„Við erum að byggja upp fé­lagið til vaxtar“

Þar segir einnig að stjórn fé­lagsins líti björtum augum á komandi ár og telur fé­lagið vel undir­búið fyrir á­fram­haldandi vöxt.

Ramma­gerðin á sér langa verslunar­sögu í mið­borg Reykja­víkur og í sumar tók Ramma­gerðin hús­næði á Lauga­vegi 31 (áður Kirkju­húsið) á leigu undir nýtt flagg­skip verslunar­keðjunnar.

„Verslunin mun opna fyrir jól og verður glæsi­legur vett­vangur fyrir þann hönnunar­heim sem Ramma­gerðin býður upp á og bætist við verslanir Ramma­gerðarinnar í Reykja­vík sem eru á Skóla­vörðu­stíg og í Hörpu. Ramma­gerðin er stolt af því að vera eina fyrir­tækið á Ís­landi sem vinnur al­farið með ís­lenskum hönnuðum og fram­leið­endum,“ segir í tilkynningu.

Þá mun ný verslun Ramma­gerðarinnar opna á Kefla­víkur­flug­velli á nýju ári en hún er unnin af Basalt arki­tektum líkt og verslanirnar í Hörpu og á Lauga­vegi.

„Við erum að byggja fyrir­tækið upp aftur eftir erfið ár í Co­vid. Við erum svo glöð að reksturinn hafi verið já­kvæður þrátt fyrir það. Veg­ferðin er skýr: Við erum að byggja upp fé­lagið til vaxtar, fjár­festa í nýjum búðum og vörum sem og fólki. Til þess að geta það þarf grunn­reksturinn að vera góður,“ segir Bjarn­ey Harðar­dóttir, annar eig­anda Ramma­gerðarinnar.