Reykjanesbær hefur keypt 2,5% hlut í Geysi Green Energy. Ennfremur hefur orðið að samkomulagi að höfuðstöðvar fyrirtækisins verði í Reykjanesbæ. Í tilkynningu vegna kaupanna kemur fram að mjög er horft til samstarfs við Hitaveitu Suðurnesja.

Geysir er í eigu Green Energy í eigu FL Group, Glitnis og VGK Hönnunar. Þessir aðilar hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf við Reykjanesbær í þeim tilgangi að byggja upp leiðandi alþjóðlegt orkufyrirtæki. Gert er ráð fyrir að Geysir taki þátt í kostnaði við uppbyggingu á orkusetri í bænum í samvinnu við Reykjanesbæ og fleiri sem þekkingu hafa og reynslu í þessum málaflokki.

Geysir Green Energy var stofnað í janúar á þessu ári. Fyrirtækið mun einbeita sér að tækifærum í nýtingu jarðvarma, fjárfestingum í þróun og byggingu jarðvarmaorkuvera, annast yfirtöku á jarðvarmaorkuverum í eigu orkufyrirtækja og taka þátt í einkavæðingu orkufyrirtækja þar sem tækifæri gefast. Mikil reynsla er nú þegar innan fyrirtækisins á þessu sviði.