Icelandair flutti metfjölda farþega í mars eða 312 þúsund, 5% fleiri en á sama tíma í fyrra en flugframboð jókst sömuleiðis um 5%. Í tilkynningu Icelandair kemur fram að um sé að ræða metfjölda farþega hjá félaginu í marsmánuði. Sætanýting var 83,5% og stundvísi var 84%.
„Það er ánægjulegt að sjá farþegum fjölga um 5% milli ára, þrátt fyrir að páskarnir hafi verið í mars í fyrra,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
„Þetta undirstrikar að varan og þjónustan sem við bjóðum er samkeppnishæf og eftirsóknarverð allt árið um kring, þar með talið yfir vetrarmánuðina þegar eftirspurn er almennt minni. Á sama tíma náðum við að viðhalda góðri stundvísi og áframhaldandi hárri sætanýtingu.“

Bókunarstaðan almennt sterkari en í fyrra
Fram kemur að í marsmánuði voru 38% farþegar félagsins á leið til Íslands, 18% frá Íslandi, 37% voru tengifarþegar og 7% ferðuðust innanlands.
Icelandair segir tekjumyndun í mánuðinum hafa verið í takti við væntingar stjórnenda. Tekjur á hvern seldan sætiskílómetra (yield) námu 8,1 bandarísku senti og lækkuðu samanborið við mars á síðasta ári, sem félagið rekur aðallega til þess að páskar voru í mars í fyrra.
„Bókunarstaðan fyrir sumarið á markaðnum til Íslands er betri nú en á sama tíma í fyrra frá öllum mörkuðum – N-Ameríku, Evrópu og frá fjarmörkuðum. Eftirspurn á markaðnum frá Íslandi er einnig mun sterkari en á sama tíma í fyrra,“ segir Bogi.
„Eftirspurn á markaðnum um Ísland er góð, en vegna áherslu okkar á aðra markaði, eru bókanir á þeim markaði færri en á sama tíma í fyrra. Bókunarstaðan er því almennt sterkari fyrir sumarið en á sama tíma í fyrra en við höfum orðið vör við að hægst hefur á bókunum til lengri tíma sem er skiljanlegt í ljósi óvissu í alþjóðlegu efnahagsumhverfi.“
Bogi nefnir einnig að Icelandair hafi nýlega eflt samstarf við JetBlue sem geri meðlimum vildarklúbbs þeirra kleift að greiða fyrir flug hjá Icelandair með vildarpunktum. Icelandair gerir ráð fyrir því að þetta stuðli að aukinni eftirspurn eftir flugi til Íslands hjá viðskiptavinum JetBlue.
Seldir blokktímar í leiguflugi hjá Icelandair voru 50% fleiri en í mars í fyrra og fraktflutningar jukust um 3%.