Fjártæknifyrirtækið SaltPay hefur fjárfest í Dineout. Eigendahópurinn samanstendur nú af Ingu Tinnu Sigurðardóttur stofnanda og framkvæmdastjóra félagsins, Tix miðasölu ehf., Magnúsi Birni Sigurðssyni, Viktori Blöndali Pálssyni og SaltPay.

Fjárfesting SaltPay mun m.a. fara í að styrkja stöðu Dineout hérlendis enn frekar ásamt því að sækja á erlenda markaði samkvæmt tilkynningu frá Dineout.

„Samhliða fjármögnun SaltPay mun Dineout ráða inn starfsfólk á næstu vikum. Við búum í dag yfir yfirburða færu starfsfólki en þótt ótrúlegt megi virðast hefur okkur tekist að komast á þennan stað, aðeins fimm talsins (lengi vel þrjú). Það er ekki fjöldi starfsmanna sem gildir heldur gæði og gæðin eru svo sannarlega til staðar hjá Dineout,“ er haft eftir Ingu Tinnu í tilkynningunni.

Sjá einnig: Fjár­festing Tix stökk­pallur fyrir út­rás

Dineout býður upp á hugbúnaðarlausnir fyrir borðabókunarkerfi á netinu og annað tengt veitinga- og viðburðarhaldi. Í tilkynningu frá Dineout kemur fram að 6,5 milljónir gesta hafi sest hafa til borðs í gegnum Dineout en nú eru um 170 veitingastaðir í viðskiptum við Dineout. Um 90.000 heimsóknir eru inn á dineout.is á mánuði og um 25.000 manns hafa sótt sér Dineout Iceland appið.

Í tilkynningunni kemur einnig fram að búið sé að tengja saman saman lausnir Tix miðasölukerfis við lausnir Dineout. „Niðurstaðan er heildarlausn fyrir tónleikahallir, kvikmyndahús og leikhús. Tix starfar nú í 9 löndum og mun þessi nýja heildarlausn fara í notkun í Noregi í næsta mánuði.“

„Ísland hefur verið frábær markaður fyrir okkur og hefur stuðlað að hraðri þróun lausnanna. Við erum komin á þann stað að lausnir okkar eru tilbúnar fyrir erlenda markaði. Frá upphafi hafa veitingamenn tekið þátt í þróun allra þeirra kerfa sem við höfum komið á markaðinn og hefur það gert lausnir okkar eins góðar og raun ber vitni, segir Inga Tinna. Við erum þeim og landsmönnum gríðarlega þakklát fyrir viðtökurnar," segir Inga Tinna.