Sjóböð ehf., félag sem rekur GeoSea sjóböðin á Húsavík, skilaði 13 milljóna króna hagnaði á árinu 2024 samanborið við tæplega 44 milljóna króna hagnað árið 2023.

Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur arður á árinu 2025 vegna rekstrarársins 2024, að því er segir í ársreikningi félagsins.

Tekjur Sjóbaða, sem opnuðu í september 2018, námu 313 milljónum króna og drógust saman um 5,7% á milli ára. Rekstrargjöld námu 254 milljónum króna og jukust um 9% á milli ára.

Eigir félagsins voru bókfærðar á 702 milljónir króna í árslok 2024. Eigið fé var um 343 milljónir og skuldir 359 milljónir.

Fjárfestingarsjóðurinn Norðurböð er stærsti hluthafi félagsins með 34,7% hlut. Útgerðarmaðurinn Pétur Stefánsson er næst stærsti hluthafi Sjóbaðanna með 29% hlut. Þá eiga Jarðböðin á Mývatni 22% hlut í Sjóböðunum og Orkuveita Húsavíkur ohf. 13,8% hlut.