Marel hefur komist að samkomulagi við Stacey Katz, fjármálastjóra félagsins, um starfslok hennar hjá félaginu. Sebastiaan Boelen hefur verið ráðinn í stöðu fjármálastjóra frá og með deginum í dag.

Í tilkynningu Marels til Kauphallarinnar segir að Stacey verði félaginu innan handar sem ráðgjafi út fjárhagsárið til að tryggja góða yfirfærslu á ábyrgð og verkefnum. Stacey hefur starfað hjá Marel í tíu ár, þar af sem fjármálastjóri undanfarin tvö ár.

„Fyrir hönd Marel vil ég þakka Stacey Katz fyrir vel unnin störf og mikilvægt framlag hennar í gegnum árin, þá sérstaklega í áskorunum síðustu ára. Við óskum henni alls hins besta og farsældar í framtíðarverkefnum,“ segir Árni Sigurðsson, forstjóri Marels.

Sebastiaan starfaði áður hjá Southern Water í Bretlandi þar sem hann var fjármálastjóri samstæðunnar í fjögur ár. Fyrir það starfaði Sebastiaan við fjármálastjórn og rekstur, meðal annars hjá Arrow Global, SPI Group og Black & Decker.

Sebastiaan hefur yfir 25 ára reynslu á sviði fjármála og rekstrar í alþjóðlegum fyrirtækjum og hefur bæði hollenskt og breskt ríkisfang. Reynsla hans er sögð spanna mismunandi svið iðnaðar, þar á meðal framleiðslu, matvæla, drykkjarfanga og tækni „þar sem hann hefur náð góðum árangri í bættri rekstrarafkomu“.

„Ég vil bjóða Sebastiaan innilega velkominn til Marel. Hann er afar reynslumikill fjármálastjóri og ég hlakka til að fá hann til starfa. Alþjóðleg og yfirgripsmikil reynsla Sebastiaan mun nýtast félaginu vel til að grípa þau viðamiklu tækifæri sem í félaginu búa og tryggja áframhaldandi vöxt og viðgang í takt við fjárhagsmarkmið félagsins,“ segir Árni.