Ríkisendurskoðun segir „ófremdarástand“ í skilum ársreikninga sjóða og sjálfseignarstofnana. Einungis 155 aðilar eða um 23% þeirra sjóða og stofnana sem voru á skrá fyrir árið 2023 skiluðu ársreikningi fyrir síðasta ár á tilsettum tíma en skilafrestur var 30. júní.

Í frétt á vef Ríkisendurskoðunar kemur fram að skilin á sama tíma árið 2023 voru um 22% og um 30% árið 2022. Stofnunin segir Því er ljóst að skil sjóða hafa farið versnandi sl. ár.

„Ríkisendurskoðun lítur þetta mjög alvarlegum augum og ekki hvað síst í ljósi þess að í nýjasta áhættumati Ríkislögreglustjóra vegna peningaþvættis og fjármögnun hryðjuverka sem gefið var út í desember 2023, er sérstaklega fjallað um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og ófullnægjandi skil þeirra á ársreikningum síðustu ár.“

Samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, ber þeim sem bera ábyrgð á sjóði eða stofnun að senda Ríkisendurskoðun ársreikning sjóðs eða stofnunar ásamt skýrslu um hvernig fé hefur verið ráðstafað. Árlegur skilafrestur er 30. júní.

Mynd tekin af vef Ríkisendurskoðunar.

Sýslumaður tekur við málaflokknum

Ríkisendurskoðun segir að athygli stjórnvalda hafi á undanförnum árum verið vakin á slælegum skilum og skorti stofnunarinnar á úrræðum vegna þessa.

Í júní voru samþykkt á Alþingi lög um breytingu á lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá sem taka munu gildi 1. janúar 2025. Lögin feli í sér talsverðar breytingar og mun sýslumaður taka alfarið við málaflokknum, m.a. móttöku og yfirferð ársreikninga.