Sex einstaklingar hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi árið 2024 sem veitt voru veitt í dag við hátíðlega athöfn á Grand Hótel að viðstöddum forseta Íslands. Verðlaunin voru veitt í þremur flokkum auk þess sem veitt voru sérstök hvatningarverðlaun. Þetta er í fimmtánda sinn sem Stjórnunarverðlaunin eru afhent.

Handhafar Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2024 eru eftirtaldir:

Í flokki yfirstjórnenda: Pétur Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf,

Í flokki millistjórnenda: Gerður Pétursdóttir, fræðslustjóri Isavia, og Sigurður Böðvarsson framkvæmdastjóri lækninga og sjúkrasviðs hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Í flokki frumkvöðla: Stofnendur Oculis, þeir Einar Stefánsson, prófessor í augnlækningum, og Þorsteinn Loftsson, prófessor í lyfjafræði.

Auk þess voru veitt sérstök hvatningarverðlaun en þau hlaut Joanna Dominiczak, fagstjóri íslenskunáms og erlends samstarfs hjá Mímir símenntun.

Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi eru árlega veitt stjórnendum fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði. Yfirlýst markmið verðlaunanna er að stuðla að aukinni fagmennsku á sviði stjórnunar á Íslandi. Einnig er þeim ætlað að vekja athygli á framúrskarandi starfi stjórnenda og örva umræðu um faglega stjórnun.