Verslanirnar Polarn O. Pyret, Icewear, Galleri 17, Kultur, Kultur Menn og GS skór munu opna á ný í Kringlunni í dag eftir endurbætur sem staðið hafa yfir undanfarna mánuði. Síðustu verslanir munu síðan opna í næstu viku.
Hátt í 30 verslanir skemmdust eftir alvarlegan bruna í júní síðastliðnum en síðan þá hafa verslanir opnað hver á fætur annarri.
Síðustu mánuðir hafa verið langir og erfiðir fyrir alla sem tengjast Kringlunni, viðskiptavini og rekstraraðila. Miðað við umfang skemmda er kraftaverk hvað mikið hefur áunnist við endurbætur og Kringlan í dag er jafnvel betri en ný,” segir Baldvina Snælaugsdóttir, markaðsstjóri Kringlunnar.
Þar að auki mun Húrra Reykjavík opna nýja verslun í Kringlunni á næstu dögum.