Sigurður Þ. Ragnarsson – einnig þekktur sem Siggi Stormur – hefur starfað sem veðurfræðingur 365 miðla í meira en tíu ár. Hann býður nú ásamt fyrirtækinu Þekkingarmiðlun upp á námskeið í grunnatriðum loftslagsbreytinga, undir heitinu „Í einum grænum.“

Viðskiptablaðið ræddi við Sigurð um námskeiðið og hvers vegna hann telur þörf á því.

„Þekkingarmiðlun hafði samband við mig. Þeim fannst þurfa að skerpa á umræðunni. Ef þú ætlar að fá fólk til að hugsa og grípa til aðgerða er fyrsta skrefið að veita því áreiðanlegar upplýsingar,“ segir Sigurður, sem er jarð- og veðurfræðingur og margreyndur kennari.

Í námskeiðinu fjallar Sigurður um grunnatriðin í vísindunum sem eru nauðsynleg til að skilja gróðurhúsaáhrifin, en Þórhildur Þórhallsdóttir, þjálfari hjá Þekkingarmiðlun, fjallar um hagnýtar lausnir og viðbrögð, á borð við endurvinnslu, kolefnisjöfnun og breyttar samgönguvenjur.

_____________________________________

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum. Þeir áskrifendur sem ekki hafa sótt um aðgangsorð til að lesa blaðið á vefnum geta gert það hér .