Síminn hefur í dag, með samþykki Samkeppniseftirlitsins, klárað kaup á öllu hlutafé í Noona Iceland ehf., sem heldur utan um innlendan rekstur Noona Labs ehf.

Í framhaldinu mun dótturfyrirtæki Símans, Síminn Pay, stýra sameiginlegum rekstri fyrirtækjanna ásamt því að þróa nýjar lausnir Símans Pay inni í vistkerfi Noona, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Lausnir Noona og SalesCloud voru nýlega samþættar og bjóða nú upp á bókunarkerfi fyrir þjónustuaðila og veitingastaði, sölukerfi, gjafabréfalausnir, sjálfsafgreiðslulausnir, netsölulausnir, vefsíður, lagerkerfi, viðskiptamannakerfi, stimpilklukku, markaðssetningarkerfi og fleira.

„Markmiðin með kaupunum eru einföld,” segir Gunnar Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Símans Pay.

„Í fyrsta lagi ætlum við að auka enn frekar úrval þeirra fyrirtækja sem hægt er að stunda viðskipti við í gegnum Noona appið sjálft og halda þannig áfram frábærri vinnu Noona undanfarin ár. Í öðru lagi munu þessi viðskipti koma til með að bæta enn frekar þjónustu við viðskiptavini Noona og SalesCloud í heild, sem munu fljótt finna fyrir því að vera komin inn til þessarar sterku stafrænu þjónustusamstæðu sem Síminn og dótturfélög mynda. App Noona heldur áfram í óbreyttri mynd og við munum reka Noona og SalesCloud áfram undir sínum eigin vörumerkjum.“

Gunnar, sem verður samhliða framkvæmdastjórastöðu sinni í Símanum Pay jafnframt nýr framkvæmdastjóri Noona Iceland ehf., segir að sama teymi og stofnaði Noona muni halda áfram störfum fyrir félagið og vinna bæði að vöruþróun og við að þjónusta viðskiptavini.

Síminn segir að á komandi misserum muni samþætting við lausnir Símans Pay leiða af sér nýjar vörur og þjónustu sem hafa það að markmiði að létta viðskiptavinum Noona og SalesCloud reksturinn.

Noona Iceland veitir um 1.300 fyrirtækjum á Íslandi þjónustu í dag og fjölgar þeim ört. Viðskiptavinir SalesCloud voru um 300 talsins við sameiningu félagsins við Noona fyrir nokkrum vikum. Yfir 120.000 Íslendingar hafa sótt Noona appið og yfir 200.000 bókanir eiga sér stað á hverjum mánuði í gegnum kerfi Noona á Íslandi. Samanlagt voru Noona og SalesCloud með ríflega 300 milljónir króna í árstekjur árið 2023 á Íslandi.