Árið 2020 lagði Samkeppniseftirlitið 500 m. kr. sekt á Símann vegna ólíkra viðskiptakjara við sölu á Enska boltanum á Símanum Sport. Var það í fyrsta sinn frá árinu 2013 sem Símanum er gert að greiða sekt vegna samkeppnislagabrots.
Sýn hafði kvartað til SKE vegna kynningar, verðlagningu og skilmálum Símans í tengslum við Enska Boltann. Boltinn kostaði 1.000 krónur á mánuði með Heimilispakka Símans en 4.500 kr. þegar þjónustan var seld sér. Var þá talið að síminn hafði brotið gegn sáttinni frá árinu 2015 með því að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og línulega sjónvarpsþjónusta. Síminn var sektaður um 500 m. kr. Áfrýjunarnefnd Samkeppnismála staðfesti ákvörðu SKE að hluta og lækkaði sektina niður í 200 m. kr. Bæði SKE og Síminn kærðu úrskurðinn til Héraðsdóms Reykjavíkur og fer aðalmeðferð fram þann 13. september næstkomandi.
Fréttin er hluti af lengri umfjöllun í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.