Síminn hefur samið við Heimilistæki/Tölvulistann um frekara samstarf fyrirtækjanna en nú munu Heimilistæki/Tölvulistinn taka að sér sölu og þjónustu fyrir Símann á Selfossi og í Reykjanesbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Áður hafa Heimilistæki/Tölvulistinn verið endursöluaðili Símans á Egilsstöðum en frá og með 1. september munu þau taka að sér að þjónusta viðskiptavini Símans í alls þremur bæjarfélögum.
Íbúar í Reykjanesbæ og á Selfossi ásamt nærsveitum geta því sinnt sinni fjarskiptaþjónustu í heimabyggð og fengið ráðgjöf og þjónustu af sérfræðingum Heimilistækja/Tölvulistans sem þekkja vöruframboð Símans vel.
Lárus Gunnarsson, leiðtogi einstaklingssölu hjá Símanum:
„Við erum afskaplega ánægð að geta stækkað samstarf okkar við Heimilistæki/Tölvulistann sem hefur gengið afskaplega vel og við þannig aukið aðgengi að þjónustu og ráðgjöf sem viðskiptavinir okkar geta fengið í sinni heimabyggð. Þeirra starfsfólk þekkir þjónustu Símans mjög vel og eru þau frábærir fulltrúar okkar á staðnum ásamt því að hafa tæknilega þekkingu sem hjálpar okkur að veita enn betri þjónustu sem skiptir okkur máli."
Hlíðar Þór Hreinsson, framkvæmdastjóri Heimilistækja og Tölvulistans:
„Eftir áratuga gott samstarf á Egilsstöðum, þar sem Heimilistæki/Tölvulistinn hafa sinnt viðskiptavinum Símans við góðan orðstír, þá er það mikið gleðiefni að útvíkka samstarfið. Við hlökkum til samstarfsins og bjóðum viðskiptavini Símans á Selfossi og í Reykjanesbæ velkomna í verslanir okkar.”