Bandarísku leigubílafyrirtækin Waymo og Cruise hafa fengið leyfi frá borgaryfirvöldum í San Francisco til að byrja að rukka viðskiptavini fyrir ferðir í sjálfkeyrandi bílum. Fyrirtækin hafa hingað til boðið íbúum San Francisco upp á ókeypis ferðir.
Eftirlitsaðilar í San Francisco samþykktu breytinguna þrátt fyrir mótmæli frá lögreglunni, slökkviliðinu, aðgerðarsinnum og öðrum.
Sérfræðingar segja að ákvörðunin gæti verið byrjunin á nýju tímabili fyrir sjálfkeyrandi bíla en Cruise er starfrækjandi í San Francisco, Austin og Phoenix og fer um þúsund ferðir á hverju kvöldi. Sjálfkeyrandi bílar fara nú rúmlega tíu þúsund ferðir í hverri viku með farþega í þessum þremur borgum.
„Þó að við höfum ekki enn gögn til að dæma þessi tæki út frá sjónarhorni ökumanna, þá trúi ég á möguleika þessarar tækni og að hún muni auka öryggi á veginum.“
Gagnrýnendur hafa hins vegar lýst yfir áhyggjum vegna öryggis og fullyrða að bílarnir hafi oft valdið umferðaróhöppum, annaðhvort með því að slökkva skyndilega á sér eða að rýma ekki fyrir viðbragðsaðilum.
Justin Kloczko, tækni- og persónuverndarfulltrúi bandarísku neytendasamtakanna, óttast að bílarnir muni bráðum byrja að keyra í stórborgum eins og Los Angeles sem muni leiða til stórfellds atvinnuleysis meðal bílstjóra.
Skiptar skoðanir eru á bílunum en að sögn framleiðanda eru þeir hannaðir til að keyra mun varlegra en flestir ökumenn.
„Þó að við höfum ekki enn gögn til að dæma þessi tæki út frá sjónarhorni ökumanna, þá trúi ég á möguleika þessarar tækni og að hún muni auka öryggi á veginum,“ segir John Reynolds, lögreglustjóri í San Francisco.