Skeljungur, dótturfélag Skeljar fjárfestingafélags, hefur gert kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Kletti – sölu og þjónustu ehf. Samhliða hefur Skel samþykkt að kaupa allt hlutafé í Klettagörðum 8-10 ehf., félagi sem á og rekur húsnæðið sem hýsir starfsemi Kletts. Þetta kemur fram í tilkynningu Skeljar til Kauphallarinnar.
Heildarvirði Kletts í viðskiptunum nemur 2,3 milljörðum króna og heildarvirði fasteignafélagsins er metið á 1,5 milljarða. Tekið er fram að heildarvirði eignanna verði leiðrétt með hliðsjón af stöðu nettó vaxtaberandi skulda og veltufjármuna á viðmiðunardegi uppgjörs.
Kaupin á Kletti verða fjármögnuð með 600-700 milljóna króna hækkun á hlutafé Skeljungs ehf., sem Skel fjárfestingarfélag leggur til, en eru að öðru leyti fjármögnuð með nýjum lánum og yfirtöku eldri lána. Kaupin á fasteignafélaginu eru fullfjármögnuð með reiðufé og yfirtöku eldri lána, að því er kemur fram í tilkynningunni.
Starfsmenn Kletts kaupa 4% hlut
Klettur er sölu- og þjónustufyrirtæki á sviði vinnuvéla, vörubíla, hópbifreiða, tækja, skipavéla, varaaflsstöðva og hjólbarða. Klettur er umboðsaðili Scania og Caterpillar á Íslandi auk annarra framleiðenda. Klettur rekur þjónustuverkstæði í Reykjavík og á Akureyri. Þar að auki starfrækir félagið hjólbarðaverkstæði undir nafni Kletts ásamt því að eiga vörumerkið Sólningu.
Knútur Grétar Hauksson, núverandi forstjóri og stærsti eigandi Kletts, hefur samþykkt að verða stjórnarformaður félagsins. Kristján Már Atlason mun taka við sem forstjóri Kletts. Fram kemur að náðst hafi samkomulagi við lykilstarfsmenn um kaup á 4% hlut í félaginu.
Áætluð velta Kletts fyrir árið 2022 er 8,2 milljarðar króna og hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) er áætlaður um 405 milljónir.
Fasteignafélagið Klettagarðar 8-10 ehf. á fasteignirnar Klettagarða 8-10, Reykjavík, Suðurhraun 2, Garðabæ og Hjalteyrargötu 8, Akureyri. Áætlaðar leigutekjur af framangreindum fasteignum á ársgrundvelli eru 147 milljónir króna.
Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri Skeljungs:
„Með kaupunum á Kletti styrkjum við til muna vöru- og þjónustuframboð samstæðunnar. Klettur verður rekið sem sjálfstætt félag. Kaupin falla vel að þeirri stefnu að byggja upp enn öflugra þjónustufyrirtæki við íslenskt atvinnulíf. Við trúum því að með kaupunum geti samstæðan sótt á nýja markaði og tekið virkan þátt í beinni uppbyggingu innviða hérlendis næstu árin. Verði af viðskiptunum er reiknað með því að velta Skeljungs árið 2023, að Kletti meðtöldum, verði 70 milljarðar og áætlanir beggja félaga gefa fyrirheit um EBITDA í kringum 1300-1500 milljónir.“
Knútur G. Hauksson, forstjóri Kletts:
„Á undanförum árum höfum við ásamt okkar frábæra starfsfólki og traustu birgjum byggt upp öflugt sölu- og þjónustufyrirtæki. Við teljum að sú framtíðarsýn og frekari uppbyggingaráform sem tilvonandi kaupendur hafa kynnt fyrir okkur falli vel að núverandi stefnu félagsins og muni skapa því enn sterkari stöðu á þeim spennandi tímum sem framundan eru. Við höfum því fulla trú á að þetta sé frábært skref inn í framtíðina fyrir starfsmenn okkar og birgja, en ekki síður okkar tryggu viðskiptavini sem áfram geta treyst á gott vöruframboð og yfirburða þjónustu þeim til hagsbóta.“
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka var ráðgjafi seljanda í viðskiptunum. LEX lögmannsstofa var ráðgjafi Skeljar.