Slitastjórn VBS hefur vísað færslu á 600-700 milljóna króna láni bankans inn í ógjaldfært félag stærsta eiganda síns til embættis sérstaks saksóknara vegna gruns um umboðssvik. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins var það gert fyrr í þessum mánuði. Grunur leikur á að Jón Þórisson, fyrrum forstjóri VBS, og Páll Magnússon, fyrrum stjórnarformaður bankans, hafi framið umboðssvikin.
Beggja vegna borðsins
Nokkrum vikum eftir hrun voru fimm fasteignir færðar úr fasteignafélaginu Ice Properties, í eigu Sunds/IceCapital, yfir í félag sem heitir Fasteignafélagið Okkar, og er í eigu Páls Magnússonar. Páll er auk þess framkvæmdastjóri Sunds/IceCapital og sat því beggja vegna borðsins í þessum gerningi. Ice Properties skuldaði á þessum tíma VBS Fjárfestingabanka 600-700 milljónir króna með veði í eignum félagsins. Sund/IceCapital var á þeim tíma stærsti eigandi VBS og Páll stjórnarformaður bankans. Í desember 2008 var lán VBS til Ice Properties fært inn í Sund/IceCapital. Jón Þórisson, þáverandi forstjóri VBS, skrifaði undir þá skuldskeytingu.
Fært í ógjaldfært félag
Sund/IceCapital tapaði 39,3 milljörðum króna á árunum 2008 og 2009 og eigið fé þess var neikvætt um tæpa 25 milljarða króna í árslok 2009. Sund/IceCapital er því með öllu ógjaldfært félag. Slitastjórn VBS vill því meina að með skuldskeytingunni hafi lánið verið fært úr gjaldfæru félagi yfir í ógjaldfært félag. Umrætt lán var á gjalddaga 25. september 2010. Ekkert hefur verið greitt af því. Slitastjórn VBS hefur þegar tilkynnt hlutaðeigandi að hún hyggist reyna að rifta gerningnum. Nú er ljóst að hún telur einnig að almenn hegningarlög hafi mögulega verið brotin og því hefur málinu verið vísað til sérstaks saksóknara.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í dag. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér að ofan undir liðnum Tölublöð.