Skyggnir, móðurfélag Origo, hefur keypt allt hlutafé íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins Moodup, sem þróar lausnir á sviði starfsánægjumælinga.

Moodup hjálpar vinnustöðum að auka starfsánægju með mismunandi tegundum mannauðsmælinga, púlsmælingum, sérsniðnum könnunum og stjórnendamötum.

Fyrirtækið, sem var stofnað árið 2021 af Birni Brynjúlfi Björnssyni, núverandi framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, hefur vaxið hratt á skömmum tíma og í dag nota margir af stærstu vinnustöðum landsins Moodup til að fylgjast með og auka ánægju starfsfólks.

„Það mun styrkja Moodup að starfa með jafn framsæknu og reynslumiklu fólki og Skyggnir og Origo hafa á að skipa. Við höfum átt farsælt samstarf við Origo frá stofnun Moodup, hvort sem það snýr að viðskiptum, samþættingu á milli Moodup og Kjarna, sölu- eða fræðslusamstarfi. Þetta verður frábært nýtt heimili og náttúrulegt næsta skref í vaxtarsögu félagsins,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, stjórnarformaður og stofnandi Moodup.

Samþætta Moodp við lausnir Origo

Skyggnir segir að kaupin opni fyrir ný tækifæri til að auka samþættingu Moodup við lausnir Origo í mannauðstækni. Origo þrói meðal annars Kjarna mannauðs- og launakerfi, sem gerir fyrirtækjum kleift að halda utan um öll mannauðsmálin sín á einum stað og Rúnu launavakt, sem eykur gagnsæi og samræmi í launamálum.

„Með þéttara samstarfi munu Moodup og Origo geta boðið viðskiptavinum heildstæðari og öflugri lausnir sem ná til allra þátta mannauðsstjórnunar, allt frá ráðningum og frammistöðustjórnun til launa- og upplýsingakerfa.“

„Moodup býr yfir áhugaverðum vaxtartækifærum sem við erum spennt að styðja við í formi þekkingar á uppbyggingu hugbúnaðarfyrirtækja og mannauðslausna. Mannauðsmál eru mikilvægustu viðfangsefni stjórnenda og með nánara samstarfi Origo og Moodup getum við hjálpað viðskiptavinum okkar að ná forskoti með betri verkfærum og ánægðara starfsfólki,“ segir Ari Daníelsson, forstjóri Origo.

„Við erum gríðarlega spennt að hefja nýja vegferð samhliða Origo og Kjarna. Við munum nýta aukinn slagkraft til að bæta enn frekar upplifun stjórnenda og starfsfólks ásamt því halda áfram þróun á nýrri virkni og sókn á nýja markaði. Þar er margt spennandi í vændum sem ég hlakka til að deila með okkar vinnustöðum,“ segir Davíð Tómas Tómasson, framkvæmdastjóri Moodup.

Moodup velti 67 milljónum króna árið 2023 samanborið við tæplega 31 milljónar króna veltu árið 2022 Félagið hagnaðist um 30 milljónir árið 2023 samanborið við 10 milljónir árið áður. Eignir félagsins voru bókfærðar á 42 milljónir í árslok 2023 og eigið fé var um 31 milljón.

Björn Brynjólfur átti allt hlutafé í Moodup samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins.