Íslenska sprotafyrirtækið Snerpa Power sótti 2,2 milljónir evra, eða sem nemur tæplega 310 milljónum króna, í sinni fyrstu fjármögnunarlotu sem lauk dögunum. Vísisjóðirnir Crowberry Capital og Backing Minds leiddu fjármögnunina.

Umframeftirspurn var eftir hlutafé í félaginu, að því er segir í fréttatilkynningu. Fjármagnið verður nýtt til frekari vöruþróunar og sóknar á erlenda markaði.

Íris Baldursdóttir og Eyrún Linnet stofnuðu Snerpa Power árið 2022 með það að markmiði að skapa aukið rými fyrir orkuskiptin á raforkumarkaði hvort sem er á Íslandi eða erlendis.

Snerpa Power gerir stórnotendum rafmagns (s.s. álverum, gagnaverum og öðrum iðnaði sem notar mikið rafmagn) m.a. kleift að taka aukinn þátt á raforkumarkaði til að jafna sveiflur. Félagið segir að það leiði til nýrra tekjustrauma, bættrar samkeppnishæfni og lægri raforkukostnaðar hjá stórnotendum.

Hugbúnaðarlausn Snerpa Power gerir fyrirtækjum kleift að nýta rauntímagögn til að bæta og sjálfvirknivæða ákvarðanatöku sem varðar raforkunotkun og áætlanagerð, raforkusamninga og sölu reglunarafls inn á net. Hugbúnaðurinn er beintengdur raforkumarkaði og í gegnum hann geta iðnfyrirtæki með öruggum og arðbærum hætti aukið stöðugleika raforkukerfisins og bætt nýtni þess

„Stórnotendur eru í auknum mæli að forgangsraða orkunýtni og sjálfbærni í orkunotkun til að tryggja samkeppnishæfni í orkukerfi sem er í miðri umbreytingu. Metnaðarfull iðnfyrirtæki stefna á að vera hluti af kolefnishlutlausu orkukerfi og orkukerfið kallar eftir þátttöku þessara notenda. Hins vegar vantar lausnir til að leysa áskoranir orkuskiptanna og gera það aðlaðandi fyrir iðnaðinn að taka þátt,” segir Íris Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Snerpu Power.

„Við erum sannfærðar um að nýsköpun, sjálfvirkni og stafrænar lausnir skili ávinningi fyrir bæði iðnaðinn en einnig orkukerfið í heild. Samstarf okkar við stórnotendur er þétt og með það að markmiði að finna lausnir sem henta þeirra álagstegund best, og því sem markaðurinn kallar eftir,” segir Eyrún Linnet, tæknistjóri Snerpu Power.

„Ég var svo heppin að frétta af áformum Írisar og Eyrúnar fyrir stofnun Snerpa Power. Ég hvatti þær hiklaust til að einbeita sér að fullu að því að koma Snerpa Power á fót, vitandi að lausnin byggir á langri og yfirgrípandi reynslu þeirra úr raforkugeiranum,” segir Jenny Ruth Hrafnsdottir, stofnandi og meðeigandi Crowberry Capital.

„Við höfum í þó nokkurn tíma skoðað orkutengdar fjárfestingar og þegar við hittum stofnendur Snerpa Power, Írisi og Eyrúnu, heilluðumst við samstundis af einstakri innsýn þeirra og yfir 40 ára samanlagðri reynslu úr geiranum. Þess vegna var það auðveld ákvörðun að styðja tvo sterka leiðtoga í að knýja fram græn umskipti innan orkugeirans,” segir Susanne Najafi, stofnandi og meðeigandi BackingMinds.