Félagið Sögn ehf. sem er í eigu leikstjórans og framleiðandans Baltasars Kormáks, hagnaðist um 337 milljónir króna á síðasta ári samanborið við 163 milljónir árið 2020.
Sögn á eignarhlut í fjölmörgum félögum, þar með talið RVK Studios. Rekstrartekjur Sagnar námu 521 milljón í fyrra en árið á undan námu þær 284 milljónum. Sögn greiddi samtals 296 milljónir króna í arð vegna síðasta rekstrarárs en árið á undan nam arðgreiðslan 105 milljónum.
Lykiltölur / Sögn
2020 | |||||||
284 | |||||||
894 | |||||||
752 | |||||||
163 |
Fréttin birtist í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.