Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur staðfest BBB lánshæfismat Arion banka til langs tíma en breytir horfum úr stöðugum í neikvæðar. Samkvæmt áhættumatinu hefur áhætta í efnahagsumhverfi hérlendis aukist vegna vaxtastigs og hækkun á fasteignaverði.
Áhættumati S&P er frá júlí 2022 en var staðfest í mars á þessu ári.
Breytt mat á íslensku efnahagsumhverfi þýðir að S&P mun gera auknar kröfur um eiginfjárhlutfall Arion banka til þess að viðhalda „mjög sterkri“ eiginfjárstöðu. Kröfur S&P eru umtalsvert umfram heildareiginfjárkröfur eftirlitsaðila. Vöxtur fyrirtækjalána og útgreiðsla eiginfjár hafa einnig haft áhrif í þessu sambandi.
S&P telur að arðsemi Arion banka verði áfram góð og væntir fyrirtækið þess að Arion banki muni styrkja eiginfjárstöðuna á næstu 12-24 mánuðum. Skammtíma lánshæfimat Arion banka er áfram A-2.