Markaðsaðilar sem tóku þátt í könnun Seðlabankans á í síðustu viku gera ráð fyrir því að meginvextir Seðlabankans lækki áfram og verði 7,75% í lok mars, og lækki þannig um samtals 0,75 prósentur á þessum ársfjórðungi.

Tvær vaxtaákvarðanir eru boðaðar í þessum ársfjórðungi, annars vegar á miðvikudaginn næsta, 5. febrúar, og 19‏‏. mars.

Þess má geta að markaðsaðilar sem tóku þátt í könnun Viðskiptablaðsins, gera ráð fyrir 50 punkta stýrivaxtalækkun í næstu viku.

Miðað við miðgildi svara í könnun Seðlabankans, sem var framkvæmd dagana 20. til 22. janúar, gera markaðsaðilar ráð fyrir því að stýrivextir verði 6,75% eftir eitt ár, eða um 1,75 prósentum lægri en í dag, og 5,75% eftir tvö ár. Þetta eru sömu vextir og markaðsaðilar væntu í síðustu könnun.

Hlutfall svarenda sem taldi taumhaldið vera of þétt minnkaði lítillega milli kannana og var 80%, samanborið við 87% í síðustu könnun. Um 20% töldu taumhaldið vera hæfilegt samanborið við 13% í nóvember en enginn svaraði því að taumhaldið væri of laust.

Í tilkynningu á vef Seðlabankans segir að niðurstöður könnunarinnar gefi til kynna að verðbólguvæntingar markaðsaðila til skamms tíma hafi lítið breyst frá síðustu könnun í nóvember.

Markaðsaðilar vænti þess að verðbólga, sem mældist 4,8% í desember, minnki áfram og verði 3,6% eftir eitt ár, 3,3% eftir tvö ár og 3,4% að meðaltali næstu fimm ár.

„Langtímaverðbólguvæntingar þeirra hækkuðu hins vegar milli kannana og búast þeir nú við því að verðbólga verði 3,4% að meðaltali næstu tíu ár samanborið við 3% í síðustu könnun.“

Fram kemur að dreifing svara um væntingar til verðbólgu hafi verið minni en í nóvemberkönnuninni á flesta mælikvarða. Hins vegar hafi dreifing svara markaðsaðila um væntingar til vaxta aukist á nær alla mælikvarða milli kannana.

Samkvæmt niðurstöðum úr könnuninni búast markaðsaðilar við því að gengi krónunnar lækki á næstu misserum og að gengi evru gagnvart krónu verði 150 krónur eftir eitt ár.