Útlit er fyrir að fjöldi milljónamæringa í Bandaríkjadollurum sem hafa búsetu í Bretlandi og Hollandi muni fækka um fram til ársins 2028 samkvæmt nýrri skýrslu svissneska fjárfestingarbankans UBS.
Bankinn spáir því að fjöldi einstaklinga með auðæfi yfir eina milljón dollara muni aukast í 52 af þeim 56 löndum sem spáin nær til.
Einungis er spáð marktækri fækkun í Bretlandi og Hollandi, eða um 17% og 4% fækkun hjá hvoru landi um sig. Gangi það eftir þá mun fjöldi milljónamæringa í Bretlandi fækka úr 3.062 þúsund í 2.542 þúsund frá árinu 2023 til 2028.
Aðalhagfræðingur alþjóðlegrar eignastýringar hjá UBS segir í samtali við Financial Times að efnaðir einstaklingar sem hafi tök á sveigjanlegri búsetu hafi laðast að Bretlandi og Hollandi í mörg ár.
Nýleg þróun í heimshagkerfinu og alþjóðastjórnmálum hafi haft áhrif á ákveðinn hóp einstaklinga sem hefur leitað til þessara landa. Hann nefnir þar t.d. áhrif viðskiptaþvingana á rússneska auðkýfinga sem hafa margir haft búsetu í London.
Þess er einnig getið að Bretland hefur haft hlutfallslega marga milljónamæringa miðað við fjölda íbúa.
UBS spáir því að milljónamæringum muni fjölga mest í Taívan fram til ársins 2028 eða um 47% frá árinu 2023. Það skýrist helst af örum vexti örgjörvaiðnaðarins ásamt því að spáð er að fjölga muni efnuðum einstaklingum sem flytja til landsins.
Fjöldi milljónamæringa (USD) í þúsundum
2023-2028 |
47% |
43% |
37% |
32% |
28% |
27% |
26% |
24% |
24% |
22% |
22% |
22% |
22% |
21% |
21% |
21% |
20% |
19% |
17% |
17% |
16% |
16% |
16% |
15% |
15% |
14% |
14% |
14% |
13% |
12% |
10% |
9% |
8% |
0% |
-4% |
-17% |