Ríkisstjórn Sri Lanka hefur skipað 5 daga frí sem hefst frá og með deginum í dag í von um að tækla efnahagskreppuna sem ríkir þar í landinu. Kreppan er sú versta síðan eyjan fékk sjálfstæði frá Bretum árið 1948.
Á meðan fríið stendur mun ríkisstjórnin reyna að skipuleggja hvernig hún hyggst greiða þá 42 milljarða dali sem þjóðin skuldar. Áætlað er að ríkisstjórnin skeri niður opinber útgjöld um 30% og fari fram á framlengingu til að greiða niður lánin sín.
Alex Holmes, hagfræðingur hjá Oxford Economics, segir að ákvörðunin um að halda svo langt frí sýni að stjórnvöld voru farin að hafa áhyggjur af bankaáhlaupi. Fríið mun einnig virka gefa markaðnum svigrúm og forða honum frá stórum markaðsbreytingum.
Búið er að fullvissa bankaviðskiptavini í landinu um að innistæður þeirra eru örruggar á sínum stað. Forseti landsins hefur einnig fullvissað almenning um að þess endurskipulagning muni ekki leiða til hruns á bankakerfinu.
Roshan Perera, hagfræðingur og fyrrum seðlabankastjóri Sri Lanka, segir að innlendir kröfuhafar virðast ekki fá sanngjarna meðferð. „Miðað við það sem við sjáum verða bankarnir, einkalánveitendur og fjárfestar ekki fyrir áhrifum af innlendri skuldbreytingu. Hins vegar er það seðlabankinn og lífeyrissjóðirnir sem munu taka á sig breiðara högg.“