Ríkisstjórn Sri Lanka hefur staðfest að það hafi samið við Kína um endurskipulagningu á 4,2 milljarða dala láni sem þjóðin skuldar kínverskum yfirvöldum. Þjóðin hefur einnig reynt að ná svipuðum samningum við aðra lánveitendur.
Sri Lanka varð með öllu gjaldþrota í júlí í fyrra og upplifir nú þjóðin verstu fjármálakreppu í áratugi. Óraverðbólga og skortur á nauðsynjavörum olli meðal annars stórfelldum mótmælum í landinu á síðasta ári.
Fjármálaráðuneyti Sri Lanka segist þakka China Exim (Export/Import) fyrir stuðninginn við að leysa skuldastöðu landsins. „Þessi samningur er lykiláfangi í áframhaldandi viðleitni Sri Lanka til að stuðla að efnahagsbata þess.“
Ráðuneytið hefur hins vegar ekki veitt frekari upplýsingar um skilmála samningsins.
Erlendar skuldir Sri Lanka nema 46,9 milljörðum dala en það skuldar 52% af því til Kína. Skyldi Sri Lanka ná að semja við fleiri lánveitendur gæti þjóðin tryggt þriggja milljarða dala björgunarpakka sem hún þarf frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.