Fasteignasalan Stakfell hefur gengið til liðs við fasteignasöluna TORG.
Þorlákur Ómar Einarsson hefur rekið Stakfell í 16 ár en hann hefur starfað við fasteignasölu í yfir 40 ár. Að sögn Þorláks hefur skrefið verið tekið eftir töluvert góða yfirferð og mat. „Eftir farsæl 16 ár færum við okkur og tökum enn eitt skrefið fram á við.”
Sigurður Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri TORG, tekur í sama streng og segir að með tilkomu Stakfell komi frekari kraftur og reynsla sem viðskiptavinir muni njóta góðs af.
Hjá Fasteignasölunni TORG starfa um 20 manns.
Fasteignasalan TORG hefur verið starfandi í hart nær 20 ár en þar starfa um 20 manns. Viðskiptavinir stofunnar eru meðal annars einstaklingar, verktakafyrirtæki, fjármálastofnanir, fyrirtæki, bæjarfélög sem og opinberar stofnanir. Sérsvið TORG hefur í gegnum árin verið sala á íbúðum, nýbyggingum, atvinnuhúsnæði, jörðum sem og fyrirtækjum.