Áætlað er að losun gróðurhúsalofttegunda frá hagkerfi Íslands hafi verið 5.065 kílótonn CO2-ígilda á fyrstu þremur ársfjórðungum 2024. Losun gróðurhúsalofttegunda hefur því dregist saman um 4% ef miðað er við sama tímabil fyrra árs.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar en sé hins vegar miðað við sama tímabil ársins 2022 þá hefur losun aukist um 8%.

„Tæplega 92% af losun frá hagkerfinu mátti rekja til atvinnugreina en þar vó þyngst losun tengd framleiðslu málma (26% af heildarlosun) og flugsamgöngum (25%). Losun frá fiskveiðum og fiskeldi nam um 7,7% af heildarlosun, litlu minna en losun frá heimilum landsins sem var um 8,2% af heildinni. Losun frá heimilum var nær eingöngu vegna aksturs heimilisbíla,“ segir í greiningu Hagstofunnar.

Þess má geta að losun frá hagkerfi Íslands er frábrugðin losunarbókhaldi Íslands sem Umhverfisstofnun sendir til loftslagsráðs Sameinuðu þjóðanna. Í því bókhaldi er eingöngu litið á losun sem á sér stað innan landamæra Íslands en útmörk hagkerfisins eru önnur.