Framtakssjóður í rekstri Alfa Framtaks og teymi Gröfu & Grjót hafa stofnað Invit, nýja samstæðu íslenskra innviðafyrirtækja. Í tilkynningu segir að meginhlutverk Invit sé að sameina reynd íslensk innviðafyrirtæki undir einni regnhlíf.

„Með þessu er stefnt að því að festa í sessi þá þekkingu sem skapast hefur í stórframkvæmdum hér á landi og jafnframt að gera innviðafjárfestingar á Íslandi að öruggari valkosti fyrir fjárfesta.“

Undir hatti Invit starfa nú 87 manns, annars vegar hjá Gröfu & Grjót en einnig Steingarði. Horft er til þess að stækka Invit frekar á næstunni með það fyrir augum að fanga stærri hluta virðiskeðjunnar þ.e. að sinna verkefnum á sviði jarðvinnu, vegagerðar og stórframkvæmda um land allt.

„Okkar megin markmið er að efla íslenska innviði til framtíðar. Næstu árin mun bæði þurfa að ráðast í stórar framkvæmdir og sinna viðhaldi á íslenskum innviðum, en til þess að sinna þessum verkefnum með áreiðanlegum hætti þarf öfluga heild með sérhæfðri þekkingu, sem getur staðið af sér mismunandi aðstæður í efnahagslífinu,“ segir Guðgeir Freyr Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Gröfu & Grjót.

Stofnun Invit kemur í kjölfar fjárfestingar Alfa Framtaks í Gröfu & Grjót sem tilkynnt var um mitt ár 2021. Grafa & Grjót, sem verður lykilstoð í samstæðunni, hefur yfir 20 ára reynslu á sviði jarðvinnu og gatnagerðar.

Dótturfélög innan Invit-samstæðunnar munu starfa sjálfstætt undir eigin vörumerkjum.

„Frá 2021 höfum við fjárfest í Gröfu & Grjót og Steingarði. Við hyggjumst bæta öðrum félögum við samstæðuna og þannig mynda eina sterka heild. Með því að fá bestu aðilanna undir eitt öflugt móðurfélag, náum við að leggja leiðina fyrir íslenska innviði, öruggar fjárfestingar og sjálfbærari framtíð,“ segir Árni Jón Pálsson, stjórnarformaður Invit og fjárfestingastjóri hjá Alfa Framtak.

Í tilkynningunni segir að sameiginlegt móðurfélag geti jafnframt stutt frekar við dótturfélög til að ná árangri í að minnka umhverfisfótspor sitt.