HS Orka, þriðji stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi, hagnaðist um 1,5 milljarða króna árið 2023 samanborið við 69 milljóna hagnað árið áður. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu um rekstrarniðurstöðu síðasta árs hjá félaginu.
Hagnaður HS Orku fyrir skatta nam 1.784 milljónum króna á árinu 2023, samanborið við hagnað fyrir skatta að fjárhæð 87 milljónir árið 2022.
Áréttað er að fjármagnsliðir setja verulegt mark á liðinn í samanburði á milli ára, ekki síst vegna hagfelldrar gengisþróunar íslensku krónunnar á árinu 2023. Gengishagnaður nam 1.019 milljónum króna í fyrra samanborið við gengistap upp á 1.807 milljónir árið áður.
Rekstrarhagnaður jókst um þriðjung
Rekstrarhagnaður (EBITDA) HS Orku nam 6 milljörðum króna árið 2023, samanborið við 4,6 milljarða árið áður og jókst um tæpan þriðjung milli ára.
Rekstrartekjur HS Orku námu um 13 milljörðum króna og hækka um 22% á milli ára. Félagið segir að þar muni mestu um aukna raforkusölu á hinum almenna markaði með meiri eigin framleiðslu og aukinni sölu upprunaábyrgða.
Fjárfestu fyrir 11 milljarða
HS Orka fjárfesti alls fyrir tæpa 11 milljarða króna á síðasta ári. Félagið fjárfesti annars vegar í frekari innviðauppbyggingar á Reykjanesi og hins vegar í kaupum á Íslenskri Orkuvirkjun Seyðisfirði ehf. (ÍOVS) en félagið á og rekur tvær vatnsaflsvirkjanir í Fjarðará í Seyðisfirði. Kaupin á ÍOVS voru fjármögnuð að stærstum hluta með hlutafjárhækkun beggja hluthafa.
Framkvæmdir við stækkun og endurbætur orkuversins í Svartsengi hófust í fyrra en fyrsta skóflustungan að þessu innviðaverkefni var tekin í árslok 2022. Heildarkostnaður við framkvæmdina er áætlaður ríflega 12 milljarðar króna.
Viðskiptablaðið fjallaði nýlega um úttekt Arctica Finance á arðgreiðslum og fjárfestingum HS Orku annars vegar og opinberu orkufyrirtækjanna Landsvirkjunar og Orkuveitunnar hins vegar. Niðurstöðurnar sýndu m.a. fram á að fjárfestingar HS Orku hafi verið hlutfallslega meiri en fjárfestingar Landsvirkjunar og OR þegar litið er til eigna og fastafjármuna.
HS Orka er í 50% eigu Jarðvarma, félags í eigu 14 íslenskra lífeyrissjóða, og 50% eigu breska innviðasjóðsins Ancala Partners. Eigið fé félagsins nam 31,5 milljörðum í árslok og eiginfjárhlutfallið var 42%.
„Við erum stolt af afkomu ársins 2023 en HS Orka sýndi styrk sinn svo um munar á árinu þrátt fyrir aðsteðjandi náttúruvá. Styrkurinn speglast annars vegar í kaupum á Fjarðarárvirkjunum og umfangsmikilli uppbyggingu í Svartsengi og hins vegar í skjótum viðbrögðum og aðlögunarhæfni félagsins í kjölfar jarðhræringanna við Sundhnúksgíg. Upp úr stendur gott samstarf við almannavarnir og aðra viðbragðsaðila í kjölfar eldsumbrota í Fagradalsfjalli í mars 2021, sem skilaði sér m.a. í skjótri uppbyggingu varna fyrir byggð í Grindavík og samfélagslega mikilvæga innviði í Svartsengi,“ segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku
„Frá upphafi jarðhræringanna hefur orkuvinnsla félagsins á Reykjanesi verið órofin en frá reikningsskiladegi hafa fleiri áskoranir blasað við. Fjórða eldgosið við Sundhnúksgíg stendur yfir, hraun rann yfir mikilvægar stofnæðar og flytja hefur þurft stóran hluta af starfsemi félagsins úr Svartsengi. HS Orka stendur engu að síður á styrkum stoðum sem gera félaginu kleift að takast á við slíkar áskoranir samhliða því að vinna áfram að metnaðarfullum þróunarverkefnum í orkuvinnslu og sjálfbærni.“