Ný gjaldskrá hjá Strætó mun taka gildi þann 8. janúar næstkomandi og nemur hækkunin að meðaltali 11% yfir alla fargjaldaflokka.
Sem dæmi má nefna að stakt fargjald fer úr 570 kr. í 630 kr. og 30 daga nemakort fer úr 4500 kr. í 5.200 kr. Verð á Klapp plastkortum helst þó óbreytt eða 1.000 kr.
Í tilkynningu frá Strætó segir að ákvörðun varðandi gjaldskrá Strætó hafi verið tekin af stjórn félagsins og var samþykkt á eigendafundi Strætó sem haldinn var 16. október sl.
„Litið var til rekstrarstöðu Strætó við ákvörðunina en uppsöfnuð áhrif vegna heimsfaraldurs Covids gætir enn í rekstrinum. Verðhækkunum er einnig ætlað að mæta almennum kostnaðarverðshækkunum hjá Strætó sem og hærri launakostnaði og draga úr þörf á frekari hagræðingu í leiðarkerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu,“ segir jafnframt í tilkynningu.
Gjaldskrárbreytingarnar taka til þjónustu Strætó á höfuðborgarsvæðinu en engar breytingar verða á gjaldskrá á landsbyggðinni.