Starbucks hefur ákveðið að einungis þeir sem kaupa mat eða drykk teljist viðskiptavinir á kaffihúsum fyrirtækisins í Norður-Ameríku.
Þar með verður ekki lengur leyfilegt að nýta aðstöðuna á kaffihúsunum án þess að kaupa eitthvað. Þetta kemur fram í grein Financial Times.
Tekjur Starbucks í Norður-Ameríku drógust saman um 5% milli ára á síðasta ári, í fyrsta sinn síðan 2020.
Frá árinu 2018 hefur yfirlýst stefna fyrirtækisins verið sú að leyfa öllum að nota aðstöðu kaffihúsanna, óháð því hvort þeir keyptu eitthvað eða ekki. Sú stefna var tekin upp í kjölfar handtöku tveggja manna í Philadelphia, sem báðu um að nota salernið án þess að kaupa neitt.
Stefnubreytingin hefur mætt gagnrýni, m.a. frá hagsmunahópum heimilislausra í Bandaríkjunum. Benda samtökin á að Starbucks hafi oft veitt heimilislausum skjól á morgnana þegar gistiskýlin loka og áður en bókasöfn opna. Þeir telja breytinguna skerða þá fáu mögulega sem heimilislausir hafa á þessum tíma dags.