Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentustig, úr 8,0% í 7,75%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun, að því er segir í yfirlýsingu nefndarinnar.

Nefndin vísar til þess að verðbólga hafi hjaðnað niður í 4,2% í febrúar og ekki verið minni í fjögur ár. „Hjöðnun verðbólgu er á breiðum grunni og undirliggjandi verðbólga hefur því einnig minnkað. Útlit er fyrir að áfram dragi úr verðbólgu á næstu mánuðum.“

Þá hafi hægt á vexti eftirspurnar í takt við þétt taumhald peningastefnunnar og spennan í þjóðarbúinu sé í rénun.

„Að sama skapi hefur dregið úr umsvifum á húsnæðismarkaði. Hátíðnivísbendingar gætu þó bent til þess að neysluútgjöld heimila hafi aukist á ný. Þá mælist enn mikil hækkun launakostnaðar og verðbólguvæntingar eru áfram yfir markmiði.“

Nefndin segir að þótt verðbólga hafi hjaðnað og verðbólguvæntingar lækkað síðustu misseri sé verðbólguþrýstingur enn til staðar. Það kalli á áframhaldandi þétt taumhald peningastefnunnar og varkárni við ákvarðanir um næstu skref. Við bætist mikil óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum.