Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í 9,25%. Nefndin tilkynnti um þetta í morgun.

„Peningastefnunefnd telur að núverandi aðhaldsstig sé hæfilegt til þess að koma verðbólgu í markmið en þrálát verðbólga og kraftur í innlendri eftirspurn kalla á varkárni,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar.

Verðbólga mældist 6,3% í júlí. Í yfirlýsingu nefndarinnar segir að verðbólga hafi aukist lítillega frá síðasta fundi nefndarinnar í maí eftir að hafa hjaðnað fram eftir ári.

„Undirliggjandi verðbólga er enn mikil og verðhækkanir eru á breiðum grunni þótt húsnæðisliðurinn vegi enn þungt. Verðbólguvæntingar hafa einnig lítið breyst og haldist yfir markmiði.“

Þá hafi hægt á innlendri eftirspurn undanfarið ár í takt við aukið peningalegt taumhald. Nokkur spenna sé þó enn til staðar í þjóðarbúinu og hefur lítið dregið úr henni frá maífundi nefndarinnar.

„Horfur eru því á að það geti tekið nokkurn tíma að ná fram ásættanlegri hjöðnun verðbólgu.“