Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, verður næsti sendiherra Íslands í Washington samkvæmt tillögu Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra. Svanhildur staðfestir þetta við Vísi en starfsmönnum utanríkisráðuneytisins var tilkynnt um fregnirnar í dag.

Svanhildur tekur við sem sendiherra af Bergdísi Ellertsdóttur sem hefur gegnt embættinu frá árinu 2019 þegar Geir Haarde, fyrrverandi fjármálaráðherra, lét af störfum. Skipunin er að hámarki til fimm ára og ekki með möguleika á framlengingu.

Svanhildur Hólm hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs frá árinu 2020. Hún var þar áður aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, þáverandi fjármálaráðherra og núverandi utanríkisráðherra. Svanhildur, sem er lögfræðingur að mennt, hafði einnig unnið við fjölmiðla um árabil.

„Ég er náttúrulega mjög spennt fyrir þessu. Þetta er ótrúlegur heiður að fá að starfa fyrir Ísland. Þetta snýst um það að gæta hagsmuna Íslands erlendis. Leggja sitt af mörkum,“ hefur Vísir eftir Svanhildi.