Stéttafélagið var stofnað árið 2000 af fjórum strákum sem sinntu hellulögnum á sumrin með námi og hefur síðan þá vaxið töluvert. Elvar Hermannsson, núverandi framkvæmdastjóri, byrjaði að vinna í hellulagningum hjá fyrirtækinu fyrir 20 árum síðan og hefur síðan þá ráðið til fleiri starfsmenn sem vinna að ýmsum útboðsverkefnum fyrir hið opinbera ásamt því að sinna minni háttar viðgerðum. Framkvæmdastjórinn segir lykilinn í langtímastarfsemi vera sveigjanleika.
Elvar Hermannsson, framkvæmdastjóri Stéttafélagsins, segist hafa byrjað að vinna hjá Stéttafélaginu í hellulagningum árið 2003. Árið 2006 kaupir svo Elvar fyrirtækið sem hann hafði verið að stýra samhliða skólagöngu.
„Ég hafði í raun verið að reka þetta bara sem sumarstarf á meðan ég var í námi. Svo árið 2014 klára ég háskólann og þá byrjar þetta á heilsársgrundvelli. Félagið lá hér um bil í dvala í nokkur ár á meðan ég fór í samstarf með öðrum um nokkurra ára skeið. Því lauk árið 2017 og um það leyti fer fyrirtækið alveg á fullt aftur. Þá byrjum við að helluleggja eins og gert var í byrjun og bjóðum í alls konar minni verkefni.“
Á þeim tíma tekur Elvar inn tvo meðeigendur, besta vin sinn Steinar og bróður sinn Hlyn. Steinar hefur umsjón yfir smíðadeildinni innan fyrirtækisins og Hlynur sér um jarðvinnudeildina. Elvar segist sjá um reksturinn og yfirumsjón verkefna en undanfarin ár hafa verið ráðnir inn sérfræðingar sem eru samnýttir í bæði jarðvinnu- og smíðadeildinni.
Verkefnin tengjast saman
Síðan 2017 hefur Stéttafélagið tekið að sér alls kyns útboðsverkefni á sviði gatnagerðar og lóðafrágangs en fyrirtækið hefur einnig byggt og selt nokkur ný sérbýli. Það vinnur nánast einungis í opinberum verkefnum fyrir sveitarfélögin, bæjarfélögin, ríki og borg. Að auki hefur Stéttafélagið tekið að sér verkefni fyrir veitufyrirtækin.
„Þetta er mikil vinna en við erum búnir að hólfa þetta niður þannig það séu ekki allir í öllu. Það má í raun skipta fyrirtækinu niður í tvö til þrjú lítil fyrirtæki. Við erum til dæmis með smíðadeild sem sérhæfir sig í viðhalds- og nýbyggingaverkefnum, jarðvinnudeild og svo deild tækni-, gæða- og öryggismála.“
Elvar segir að það sé hins vegar mjög skemmtilegt þegar deildirnar renna saman en í mörgum verkefnum þá gerist það að allar deildir fyrirtækisins eru nýttar.
„Eitt af fyrstu verkefnunum sem við tókum að okkur var gatnagerði í Mosfellsbæ árið 2017. Þar byrjuðum við að byggja nýja götu og þar kemur inn alls konar jarðvinna og veitulagnir en svo þurfti líka að byggja hljóðvegg með fram allri götunni. Þannig þá vorum við með smíðadeildina og jarðvinnudeildina á sama fermetranum sem var mjög skemmtilegt og hentaði mjög vel.“
Stækkun skóla og pallar fyrir skautafólk
Flaggskipsverkefni Stéttafélagsins um þessar mundir er stækkun grunnskólans í Hveragerði. Þar vinna starfsmenn fyrirtækisins hörðum höndum að því að steypa upp þriðja áfangann í því verkefni. Stéttafélagið er viðeigandi kostur fyrir verkefni í grunnskóla en það hefur tekið að sér ýmis verkefni í skólum höfuðborgarsvæðisins.
„Við vorum einnig hæstbjóðendur í tveimur lóðum í Hnoðraholti í Garðabæ og erum nú að tækla fjármögnun á þeim verkefnum en þar munum við byggja tvær blokkir í nýja hverfinu.“
Elvar segir félagið vera að vinna verkefni fyrir Reykjavíkurborg við Rauðavatn við byggingu á stórum bryggjupalli og stíg á útivistarsvæði þar. Þar verða einnig útigrill, leiktæki og litlir bjálkakofar sem hugsaðir eru fyrir fólk sem ætlar að vera á skautum í vetur.
„Ég sá það frekar snemma að það er ekki séns að vera sérhæfður á þessum markaði. Ef þú ert í verktakarekstri þá ert þú ekkert rosalega langlífur nema þú sért frekar sveigjanlegur. Þannig pælingin hjá okkur er að vera bæði á útboðsmarkaði og á sviði jarðvinnu, veitulagna, smíði og viðhaldi annars vegar og hins vegar að byggja og selja. Við getum þannig frekar aðlagað okkur að markaðnum hverju sinni, og jafnað út sveiflur,“ segir Elvar.
Nánar er fjallað um málið í blaðinu Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri, sem fylgir Viðskiptablaðinu. Blaðið er opið öllum og hægt er að skoða það hér.