Hlutabréfaverð Sýnar hækkaði um tæp 4% í Kauphöllinni í dag í 287 milljón króna viðskiptum. Dagslokagengi Sýnar var 44,4 krónur og hefur gengið nú hækkað um tæpt eitt prósent í mánuðinum eftir 26% lækkun á árinu.
Í byrjun síðasta mánaðar tilkynnti Sýn að fjölmiðlarekstri félagsins yrði skipt upp í tvær aðskildar rekstrareiningar.
Viðskiptablaðið greindi frá því í gær að viðloðandi orðrómur hefur verið í nokkurn tíma að horft sé til þess að selja hluta af fjölmiðlarekstrinum. Uppstokkunin kann að vera undanfari slíkrar sölu.
Heimildir Viðskiptablaðsins herma að Ari Edwald, fyrrum forstjóri 365 miðla, fari fyrir hópi fjárfesta sem hafa áhuga á að kaupa ráðandi hlut í miðlum sem falla undir nýju rekstrareininguna „Vefmiðlar og útvarp“, þ. e. Vísi og útvarpsmiðlana Bylgjuna, FM957 og X-ið.
Hlutabréf Kviku banka hækkuðu um tæp 3% í dag í 648 milljón króna veltu. Gengi bankans hefur nú hækkað níu viðskiptadaga í röð og farið úr 13,3 krónum í 15,2 krónur. Líkt og önnur félög á markaði er Kvika að eiga öflugan mánuð og farið upp um 7% en dræmt ár og lækkað um 18% á árinu.
Hlutabréf í Marel lækkuðu örlítið í dag eftir hækkanir síðustu daga en dagslokagengið var 458 krónur eftir 569 milljón króna veltu.
Síminn lækkaði mest allra skráðra félaga og fór gengið niður um rúm 2% í 29 milljón króna veltu. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,8% og var heildarvelta á markaði 3,8 milljarðar.