Íslenska heilbrigðistæknifyrirtækið Sidekick Health gekk í lok september frá kaupum á þýska fyrirtækinu aidhere GmbH, sem hefur verið leiðandi í lyfseðilskyldum heilbrigðistæknilausnum.

Þýska fyrirtækið, sem var stofnað árið 2019, býður upp á lausnina zanadio sem samþykkt var af lyfjaeftirlitinu þar í landi haustið 2020. Um er að ræða atferlismeðferð við offitu sem hefur gefið góða raun bæði í klínískum rannsóknum og í raunveruleikanum og sýnt fram á um 8% þyngdartap að meðaltali.

„Þetta er ríflega 130 manna fyrirtæki með höfuðstöðvar í Hamborg. Þau eru með mjög sterka lausn sem er lyfseðilsskyld heilbrigðistæknilausn við offitu, þ.e. atferlismeðferð sem læknir þarf að ávísa með lyfseðli og sjúkratryggingar greiða þá fyrir, sambærilegt og gert er með hefðbundin lyf,“ segir Tryggvi Þorgeirsson, forstjóri Sidekick Health.

„Lausnin hefur verið í hröðum vexti í Þýskalandi og við sjáum að okkar samstarfsaðilar, t.d. í Bandaríkjunum, eru að sýna henni mikinn áhuga. Við teljum mikla vaxtarmöguleika að taka þessa vöru inn á aðra markaði.“

Þá stefnir aidhere á að koma með aðra vöru á markaðinn á næsta ári sem er meðferð við sykursýki af tegund 2.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu, sem kom út á miðvikudaginn. Áskrifendur geta nálgast greinina í heild sinni hér.