Origo hélt í síðustu viku ráðstefnu á Hilton Reykjavík Nordica fyrir sveitarfélög um það hvernig þau geti nýtt sér tækni eins og gervigreind til að auka hagræðingu og bæta rekstur.
Guðný Guðbjartsdóttir, Customer Success Manager hjá danska fyrirtækinu Cludo, sagði frá þeim árangri sem Lilleström í Noregi og Hafnarfjarðarbær hafa náð með nýrri leitarvél er byggir á gervigreind.
Að sögn Guðnýjar fundu íbúar í Lilleström í Noregi strax mun. Sveitarfélagið horfði til að mynda upp á mikla fækkun símtala og tölvupósta frá íbúum og hafði Hafnafjarðarbær svipaða sögu að segja.

Mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar, Kristín Sigrún Guðmundsdóttir, sagði frá stafrænni vegferð bæjarins og rannsókn KPMG sem sýndi fjárhagslegan og umhverfislegan ábata af stafrænni vegferð upp á 22.6 milljónir á ársgrundvelli.
Reykjanesbær segist einnig hafa náð miklum árangri með innleiðingu rafræns Ábendinga- og fyrirspurnarkerfis, en með því hefur meðal annars sparast töluverður tími og afgreiðsluhraði hefur aukist til muna.
Inga Rós Gunnarsdóttir, gagnastýra hjá Reykjavíkurborg, sýndi hvernig hægt er að fylgjast með uppbyggingu Reykjavíkurborgar með gagnvirkri kortasjá. Kortasjáin hjálpar ekki einvörðungu verktökum að skipuleggja verkefni sín heldur borgurunum þegar kemur að vali á íbúðahúsnæði.