Taktikal hefur verið valið til þátttöku í Lighthouse-verkefni Mastercard og verður fyrirtækið meðal 15 frumkvöðlafyrirtækja í fjártækniiðnaðinum frá Norðurlöndunum og Eystrasaltinu.

Lighthouse Mastercard miðar að því að virkja tengslanet á milli banka, fjártæknifyrirtækja og Mastercard og efla nýsköpun í fjártæknigeiranum.

Verkefnið stendur yfir í fjóra mánuði og lýkur í desember 2024. Alls taka 15 fyrirtæki frá sex löndum þátt í verkefninu en þau voru valin úr stórum hópi umsækjenda.

„Það er okkur mikill heiður að hafa verið valin til þátttöku og þetta er mikil viðurkenning á okkar starfi. Þetta er frábært tækifæri fyrir okkur til komast í samband við fleiri samstarfsaðila og efla okkar tengslanet og mun án efa hjálpa okkur að halda áfram að vaxa og sækja á nýja markaði,” segir Valur Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri Taktikal.

Þrjú fyrirtæki verða svo valin til að taka þátt í að kynna sína úrlausn á lokadegi verkefnisins í Stokkhólmi og af þeim verður eitt fyrirtækið valið sigurvegari. Sigurvegarinn fær tækifæri til að kynna sig á alþjóðlegum frumkvöðladegi Mastercard og möguleikann á samstarfssamningi við Mastercard.