Borgarráð hefur samþykkt lóðavilyrði til Þorpsins vistfélags fyrir Gufunesbryggju og aðliggjandi lóð, en Þorpið sigraði í alþjóðlegri samkeppni á vegum C40 Reinventing Cities, samtök nær hundrað stórborga um allan heim sem vinna að því að gera borgir sjálfbærar og grænar, um svæðið.
Gert er ráð fyrir að á lóðinni verði blönduð byggð íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Samgöngumiðstöð verður þar sem finna má biðstöð fyrir bátastrætó, leikskóla, verslun og veitingastað sem að hluta verður neðansjávar.
Þá verður byggð upp heilsulind sem tengist ströndinni með sundlaug, sjósundsaðstöðu, gufuböðum, heitum pottum og hvers konar líkamsrækt. Við bryggjuna verður einnig opin aðstaða til sjóbaða fyrir almenning.

Hönnunin byggir á staðaranda með áherslu á umhverfisvænar lausnir þar sem efni er endurunnið og endurnýtt úr umhverfinu. Þannig verða núverandi steyptar bryggjur nýttar sem grunnur undir húsin og viðurinn úr gömlu bryggjunni verður notaður sem klæðning á nýjar byggingar. Bryggjubyggingin rennur út á gömlu timburbryggjuna og eru nýju húsin hluti af endurbyggingu hennar.

„Bryggjan býr til grænar tengingar fyrir Gufunesið og Grafarvoginn með rafknúnum bátastrætó í miðborgina og gerir ráð fyrir göngu- og hjólabrú út í Viðey. Gufunesið verður þannig ekki endastöð í gatna- og strætókerfi borgarinnar, heldur lifandi samgöngumiðstöð,“ segir í tilkynningu.
Samstarfsaðilar Þorpsins við vinnslu verkefnisins voru Yrki arkitektar, Environice, Exa Nordic, Vatnaskil, Eykt, Arctica Finance, Elding, World Class, True North og Kjarnasamfélag Reykjavíkur.