Þrjú stærstu merkjavöru outlet landsins opna í endurnýjuðum Holtagörðum á morgun, 26. október. NTC, S4S og Föt og skór standa að baki nýju verslununum sem eru alls um 4.500 fermetrar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reitum sem er eigandi húsnæðisins í Holtagörðum.

„Í fyrsta sinn á Íslandi geta þau sem vilja vandar merkjavörur á lægra verði fundið allt á einum stað hvort sem leitað er að skóm, tískuvörum, íþróttafatnaði eða útivistarflíkum,“ segir í tilkynningunni.

F&S outlet byggir á grunni Herralagersins en í nýrri fjórfalt stærri verslun verður tískufatnaður fyrir alla fjölskylduna frá Boss búðinni, Collections, Englabörnunum, Mathildu, Hanz og Herragarðinum.

Outlet 10 er ný verslun frá NTC með tískuvörur frá Companys, Evu, GK Reykjavík, Galleri Sautján, GS skóm, Smash Urban, Kultur, Kultur menn og Karakter konur.

S4S Premium Outlet er ný verslun sem sameinar Toppskóinn Outlet og Toppskóinn Markað með skó ásamt íþrótta- og útivistarvörum fyrir alla fjölskylduna frá Air, Ecco, Ellingsen, Kaupfélaginu, Skechers og Steinar Waage.

Kristjana Ósk Jónsdóttir, markaðsstjóri Reita:

„Nýju outlet verslanirnar gefa Holtagörðum sérstöðu sem fyrsti outlet áfangastaðurinn á Íslandi. Verslanirnar eru virkilega flottar í sérsniðnu endurnýjuðu húsnæði. Nú geta gestir í Holtagörðum fundið þar föt, skó og íþróttavörur fyrir alla fjölskylduna, allt sem þarf fyrir fallegt heimili og verslað í matinn í leiðinni.“