Skeljungur afgreiddi í fyrsta skiptið lífeldsneyti á skemmtiferðaskip. Þetta gerðist í vikunni þegar skemmtiferðaskipið Scarlet Lady frá Virgin Voyages lagðist við bryggju í Reykjavík. Þetta eru tímamót því erfitt er fyrir skemmtiferðaskip að nálgast lífeldsneyti á heimsvísu. Það er þó ekki raunin hér á Íslandi því Skeljungur afgreiddi 100 tonn.

Í tilkynningu frá Skeljungir segir að lífeldsneytið komi frá finnska fyrirtækinu Neste og sé hágæða lífeldsneyti (HVO/ Hydrotreated Vegetable Oil), framleitt úr 100% endurnýjanlegumhráefnum eins og matarolíu og dýrafitu.

„Með lífeldsneytinu er hægt að draga úr gróðurhúsalofttegundum um 75%-95% miðað við sambærilegt jarðefnaeldsneyti. Samanborið við skipaolíu (e. Marine Grade Oil) er dregið úr gróðurhúsalofttegundum um 90%," segir í tilkynningunni.

Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs, var á meðal gesta um borð í Scarlet Lady þegar skipst var á plöttum eins og hefð er fyrir þegar skip kemur í nýja höfn.

„Þetta er í fyrsta sinn sem lífeldsneyti er selt um borð í skemmtiferðaskip á Íslandi," sagði Þórður. „Forsagan er sú að ég og Unnur Elva Arnardóttir, forstöðumaður hjá Skeljungi, hittum Jill Stoneberg, forstöðumann samfélagsmála og sjálfbærni hjá Virgin Voyages, í Miami. Við sögðum henni að við gætum boðið upp á hreint lífeldsneyti á Íslandi, sem kom henni talsvert á óvart. Það hefur reynst erfitt að fá slíkt eldsneyti í erlendum höfnum. Í kjölfarið var ákveðið að afgreiða lífeldsneyti um borð í Scarlet Lady þegar skipið kæmi til Reykjavíkur og það er meðal annars ástæðan fyrir því að við erum hér í dag.“ segir Þórður.

„Virgin Voyages hafa skuldbundið sig til að ná núllosun árið 2050. Sú vegferð er þegar hafin með notkun á lífeldsneyti sem unnið er úr úrgangi í bland við það eldsneyti sem við notum að jafnaði. Við erum mjög ánægð með að geta tekið lífeldsneyti á Íslandi og vonum að fleiri hafnir muni geta boðið lífeldsneyti fyrir skemmtiferðaskip í framtíðinni,” segir Jill Stoneberg.

Skemmtiferðaskipageirinn hefur sett sér það markmið að ná kolefnishlutleysi innan 25 ára, og eru ný og nýleg skip hönnuð með það að leiðarljósi. Scarlet Lady er eitt slíkt skip; það fór í sína jómfrúarferð 14. febrúar 2020.

Skipið er með 1.408 farþegakáetur og 813 káetur fyrir áhöfn, sem gerir hámarksfjölda um borð um 4.400 manns. Við heimsókn skipsins til Reykjavíkur var það nánast fullbókað með 2.770 skiptifarþegum. Það þýðir að allir farþegar fóru frá borði til að dvelja á hótelum í Reykjavík áður en þeir flugu úr landi og nýir farþegar komu í þeirra stað um borð.

Scarlet Lady er knúið áfram af fjórum Wärtsilä 46F dísilvélum sem skila samtals 64.000 hestöflum (48 megavöttum) og geta náð allt að 22 hnúta hámarkshraða (um 41 km/klst).

Frá árinu 2022 hefur Virgin Voyages unnið markvisst að því að auka hlutdeild lífeldsneytis í sínum flota. Vélar skipsins eru þannig hannaðar til að geta brennt fjölbreyttum eldsneytistegundum þar á meðal lífeldsneyti.